Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International stendur fyrir opnu kvikmyndakvöldi þar sem horft verður á teiknimyndina Breadwinner.
Kvikmyndakvöldið verður í róttæka félagsrýminu Andrými á Bergþórugötu 20, 101 Reykjavík.
Breadwinner fjallar um 11 ára stelpu frá Afganistan sem flýr heimili sitt vegna stríðsástands og veitir innsýn í reynsluheim flóttafólks.
Eftir myndina verður lesið bréf sem borist hefur ungliðunum frá handritshöfundi myndarinnar Deborah Ellis og gestum gefst tækifæri að ræða saman.
Aðgangur ókeypis.