Wednesday 04.08. facebook.com
20:00 - 21:30

Kvöldganga | Hin hliðin á Reykjavík

Borgarbókasafnið Grófinni

ATH! Breytt dagsetning!
Þessi ganga verður farin á miðvikudegi, ekki fimmtudegi eins og vaninn er. Ástæðan er árekstur við aðra viðburði Hinsegin daga!

Guðjón Ragnar Jónasson leiðir gesti um miðbæ Reykjavíkur og bregður upp svipmyndum úr menningarheimi sem mörgum er hulinn, segir grátbroslegar sögur úr leikhúsi næturlífsins en rifjar einnig upp áfagna úr langri og strangri baráttu fyrir réttindum og sýnileika hinsegin fólks.

Gangan hefst fyrir utan Borgarbókasafnið í Grófinni.

Guðjón Ragnar Jónasson er íslenskufræðingur og kennari en veitir nú forstöðu símenntum Háskólans á Bifröst. Hann hefur m.a. kennt við Menntaskólann í Reykjavík, Keili og Austurbæjarskóla. Hann þýddi bókina Mennirnir með bleika þríhyrninginn sem kom út árið 2013, hefur skrifað barna- og námsbækur og gaf nú síðast út bókina Hin hliðin, hinsegin leiftur- og örsögur sem gangan byggir á. Guðjón sat lengi í stjórn Samtakanna78 og Hinsegin daga.

Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafnið, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Lagt er af stað kl. 20 frá Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15, nema annað sé tekið fram.
Þátttaka er ókeypis. Við biðjum alla vinsamlegast um að skrá sig í göngurnar, en vísum þó engum frá.

Skráning hér: https://bit.ly/3uTe68Q

Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Baldvinsdóttir
gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is

Organisers
Menningarkort
Menningarkort Reykjavíkur er árskort sem veitir ótakmarkaðan aðgang að söfnum í eigu Reykjavíkurborgar auk margvíslegra fríðinda og sérkjara.