Thursday 12.08. facebook.com
20:00 - 21:30

Kvöldganga | Um slóðir Ástu Sigurðardóttur

Borgarbókasafnið Grófinni

ENGLISH BELOW

Ólafur Egill Egilsson, leikstjóri, leiðir kvöldgöngu um slóðir rithöfundarins Ástu Sigurðardóttur.

Ásta Sigurðardóttir var lifandi goðsögn í bæjarlífi Reykjavíkur um miðbik síðustu aldar. Hún ögraði ríkjandi viðhorfum og var óhrædd við að segja hug sinn. Á vegferð sinni mætti hún bæði fordómum og hörku – lífið var ekki alltaf dans á rósum – en goðsögnin sem eftir lifir er djörf og hugrökk kona með von í hjarta.

Í haust verður sett á fjalirnar leiksýning um Ástu í Þjóðleikhúsinu, sem Ólafur Egill Egilsson bæði skrifar og leikstýrir. Að því tilefni leiðir bókmenntagöngu um slóðir Ástu Sigurðardóttur þar sem staldrað verður við á nokkrum af þeim stöðum sem hún hafðist við á sinni stuttu, en litríku ævi.

Nánar um viðburðinn og skráning:
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/kvoldganga-um-slodir-astu-sigurdardottur

--

Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafnið, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Lagt er af stað kl. 20 frá Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15, nema annað sé tekið fram.

Þátttaka er ókeypis. Við biðjum alla vinsamlegast um að skrá sig í göngurnar, en vísum þó engum frá. Skráning fer fram í viðburðum á heimasíðum viðkomandi safns.

Hér má sjá yfirlit yfir göngur sumarsins 2021: https://borginokkar.is/kvoldgongur-safnanna-2021


ENGLISH
(The event is in Icelandic, but everyone is welcome to join the walk.)

The author Ásta Sigurðardóttir was a living legend in Reykjavík in the mid 20th century.
The National Theatre will produce a play based on her short, but colorful - sometimes dark - life.

Evening walks are a series of events organized by Reykjavík City Library, Reykjavík City Museum and Reykjavík Art Museum. The walks take place on Thursday evenings during the summer months. They start at 20h00 from Borgarbókasafn Grófin, Tryggvagata 15, unless otherwise stated.

Participation is free. We kindly ask everyone to register for each walk, and everybody is welcome. Registration is located on the website of the relevant museum.

Organisers
Menningarkort
Menningarkort Reykjavíkur er árskort sem veitir ótakmarkaðan aðgang að söfnum í eigu Reykjavíkurborgar auk margvíslegra fríðinda og sérkjara.